Persónuupplýsingar

Meðferð og vinnsla

Creditinfo Lánstraust hf. (hér eftir Creditinfo) er fjárhagsupplýsingastofa með starfsleyfi frá Persónuvernd. Leyfið er gefið út með tilvísun í 15. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í því felst að á Creditinfo hvíla, auk þeirra skyldna sem fram koma í lögum nr. 90/2018, og reglum settum á grundvelli þeirra, þær skyldur er greinir í skilmálum starfsleyfisins um þá vinnslu sem Creditinfo stendur að sem ábyrgðaraðili vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga og lögaðila.

Creditinfo leggur ríka áherslu á að tryggja vernd og öryggi persónuupplýsinga í allri sinni starfsemi og að vinnsla sömu upplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi lög og reglur sem varða vinnslu fjárhags- og persónuupplýsinga, sbr. lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) 2016/679 (GDPR) og reglugerð nr. 606/2023 um vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust.

Vinnsla og miðlun persónuupplýsinga

Creditinfo safnar, skráir, varðveitir, vinnur og miðlar persónuupplýsingum í skýrum og lögmætum tilgangi. Megintilgangur vinnslunnar er að miðla upplýsingum til áskrifenda að þjónustu Creditinfo, s.s. í tengslum við áhættustýringu, við mat á lánshæfi og innheimtu vanskilakrafna.

Vinnsla persónuupplýsinga er jafnframt nauðsynleg til að:
  1. Veita og þróa þjónustu Creditinfo
  2. Uppfylla samningsskyldur gagnvart viðskiptavinum og áskrifendum
  3. Tryggja öryggi upplýsinga, rekjanleika og koma í veg fyrir misnoktun
  4. Uppfylla lagalegar skyldur, þ.m.t. samkvæmt persónuverndarlögum og öðrum viðeigandi lögum.
  5. Gæta lögmætra hagsmuna Creditinfo og viðskiptavina þess, svo sem við rekstur, umbætur og þróun þjónustunnar.
Miðlun upplýsinga getur átt sér stað við leit í upplýsingakerfum eða -skrám, við rafræna vöktun, flokkun eða samkeyrslu skráa.
Creditinfo hvorki vinnur með né miðlar upplýsingum um refsiverða háttsemi eða viðkvæmum persónuupplýsingum.

Öryggi gagna

Creditinfo leggur áherslu á að ströngustu öryggiskröfum sé ávallt fylgt við meðferð upplýsinga  sem félagið safnar, vinnur og miðlar. Stjórnkerfi Creditinfo er vottað samkvæmt ÍST ISO/IEC 27001:2022.
Stjórnkerfið er grundvöllur skipulags og viðhaldsaðgerða og hefur þann tilgang að stýra áhættum sem tengjast upplýsingaöryggi, gagnavernd og tryggja rekstrarsamfellu. Til samræmis hefur Creditinfo innleitt öryggisráðstafanir sem m.a. lúta að aðgangsstýringu, raunlægu öryggi, rekstraröryggi og samskiptaöryggi.  

Viðtakendur persónuupplýsinga

Persónuupplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema á grundvelli samnings, laga eða dómsúrskurða. Áskrifendur sem undirritað hafa áskriftarsamning með ítarlegum skilyrðum um öflun, notkun og meðferð upplýsinga hafa aðgang að upplýsingakerfum Creditinfo. Nöfn, kennitölur, netföng og IP tölur notenda að upplýsingakerfum eru skráðar og vistaðar í þeim tilgangi að tryggja rekjanleika uppflettinga, en er ekki miðlað til þriðja aðila. Persónuupplýsingum er ekki miðlað til þriðja ríkis án þess að fullnægjandi vernd þeirra sé tryggð.

Lagagrundvöllur vinnslu persónuupplýsinga

Vinnsla persónuupplýsinga hjá Creditinfo fer fram á grundvelli viðeigandi heimildar  samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
  1. Lagaskylda: Vinnsla er nauðsynleg til að uppfylla lagalegar skyldur sem hvíla á fyrirtækinu samkvæmt lögum og reglum, svo sem skyldur tengdar skráningu, miðlun og varðveislu upplýsinga.
  2. Samningsskyldur: Vinnsla er nauðsynleg til að efna samninga við viðskiptavini og áskrifendur, eða til að gera ráðstafanir að beiðni einstaklinga áður en samningur er gerður.
  3. Lögmætir hagsmunir: Vinnsla fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna fyrirtækisins og/eða viðskiptavina þess, svo sem við mat á lánshæfi, áhættumati, svikavörnum og þróun þjónustu, enda vegur sá hagsmunur þyngra en hagsmunir eða grundvallarréttindi og frelsi hins skráða.
     
  4. Samþykki: Vinnsla byggð á skýru og upplýstu samþykki hins skráða.  Creditinfo tryggir að vinnsla persónuupplýsinga byggi ávallt á viðeigandi lagagrundvelli.

Uppruni, ábyrgð og flokkar persónuupplýsinga

Creditinfo safnar, vinnur og/eða miðlar persónuupplýsingum frá áskrifendum, forsvarsmönnum lögaðila og opinberum aðilum, s.s.  dómstólum, sýslumönnum, Lögbirtingablaði, Þjóðskrá Íslands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samgöngustofu, Vinnuvélaskrá og Skattinum. Creditinfo er ýmist ábyrgðaraðili, sameiginlegur ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili þeirra persónuupplýsinga sem félagið vinnur og/eða miðlar.
Vinnsluaðilar Creditinfo, eða eftir atvikum undirvinnsluaðilar, eru Sensa ehf. (hýsing gagna og umsjón tölvupóstkerfa), Umslag ehf. (prentun og pökkun tilkynninga um vinnslu upplýsinga) og Gagnaeyðing ehf. (förgun raunlægra gagna og miðla).

Flokkar persónuupplýsinga

Creditinfo vinnur með ýmsa flokka persónuupplýsinga eftir eðli og tilgangi vinnslu, þeir helstu eru auðkennis- og samskiptaupplýsingar, sbr. nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang, starfænar auðkennisupplýsingar áskrifenda og notenda, mynd- og hljóðefni, sbr. upptökur úr eftirlitsmyndavélum og símtalsupptökur, fjárhagsupplýsingar sbr. nánari lýsingu hér neðar og upplýsingar úr opinberum skrám, sbr. þjóðskrá, fyrirtækja- og félagaskrá, ársreikningaskrá, ökutækjaskrá og fasteignaskrá auk upplýsinga sem nauðsynlegar eru í tengslum við starfsemi Creditinfo.

Ábyrgðaraðilar, tegundir og uppruni persónuupplýsinga

Vanskil og opinberar gjörðir (VOG)
Lýsing: Upplýsingar um vanskil og opinberar gjörðir
Uppruni: Embætti sýslumanna, dómstólar, Lögbirtingablað, áskrifendur með heimild til innsendinga upplýsinga um vanskil til miðlunar á vanskilaskrá.   Ábyrgðaraðili: Creditinfo Lánstraust hf.
Nánar um VOG vanskilaskrá
Lánshæfismat (skýrsla um lánshæfi)
Lýsing: Mat á líkum á vanskilum.
Uppruni: VOG vanskilaskrá, Skatturinn, Þjóðskrá, Creditinfo Lánstraust hf.  
Ábyrgðaraðili: Creditinfo Lánstraust hf.
Nánar um lánshæfismat
Lánshæfismat (skýrsla um lánshæfi) með viðbótarupplýsingum 
Lýsing: Mat á líkum á vanskilum þar sem notaðar eru viðbótarupplýsingar gegn upplýstu samþykki.
Uppruni: VOG vanskilaskrá, Skatturinn, Þjóðskrá, Skuldastöðukerfi, Notkunarskrár Creditinfo (uppflettingar og vaktanir áskrifenda)  
Ábyrgðaraðili: Creditinfo Lánstraust hf.
Nánar um lánshæfismat  
Eignarhald og tengsl við félög  
Lýsing: Upplýsingar um eigendur fyrirtækja, endalega eigendur og tengsl stjórnenda við önnur fyrirtæki
Uppruni: Fyrirtækja- og félagaskrá, Nasdaq á Íslandi, forsvarsmenn fyrirtækja.  
Ábyrgðaraðili: Creditinfo Lánstraust hf.
Nánar um eignarhald og tengsl
Fyrirtækja- og félagsskrá  – gildandi skráning
Lýsing: Upplýsingar um stjórnarmenn, framkvæmdastjóra, prókúruhafa, endurskoðendur, skoðunarmenn,  stofnendur og raunverulega eigendur. Uppruni: Fyrirtækja- og félagaskrá
Ábyrgðaraðili: Skatturinn
Nánar um fyrirtækjaskrá

Fyrirtækja- og félagaskrá - Breytingasaga og eldri skráningar  
Lýsing: Sögulegar skráningar stjórnarmanna, framkvæmdastjóra, prókúruhafa, endurskoðenda, skoðunarmanna og raunverulegra eigenda
Uppruni: Fyrirtækja- og félagaskrá
Ábyrgðaraðili: Skatturinn

Fyrirtækja- og félagaþátttaka
Lýsing: Tengsl einstaklinga við félög, staða og hlutverk
Uppruni: Fyrirtækja- og félagaskrá
Ábyrgðaraðili: Skatturinn  

Tilkynningar félaga til fyrirtækjaskrár  Afrit tilkynninga (pdf skjala) til fyrirtækjaskrár Skattsins
Uppruni: Fyrirtækja- og félagaskrá
Ábyrgðaraðili: Skatturinn

Þjóðskrá   
Lýsing: Upplýsingar úr Þjóðskrá  
Uppruni: Þjóðskrá
Ábyrgðaraðili: Þjóðskrá Íslands
Nánar um þjóðskrá

Þjóðskrá með viðbótarupplýsingum 
Lýsing: Upplýsingar úr Þjóðskrá ásamt viðbótarupplýsingum skv. samþykki Þjóðskrár Íslands
Uppruni: Þjóðskrá
Ábyrgðaraðili: Þjóðskrá Íslands  

Fasteignaskrá 
Lýsing: Upplýsingar um fasteignir á valið fasteignanúmer, landnúmer eða heimilisfang auk upplýsinga um þinglýst réttindi, svo sem um eigendur, veðbönd og kvaðir.
Uppruni: Fasteignaskrá  
Ábyrgðaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Nánar um fasteignaskrá

Fasteignaskrá – Eignaleit  
Lýsing: Upplýsingar um fasteignaeign á valinn einstakling ásamt eignasögu
Uppruni: Fasteignaskrá  
Ábyrgðaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun  

Ökutækja- og vinnuvélaskrá 
Lýsing: Upplýsingar um ökutæki og vinnuvélar á valið númer bifreiðar eða ökutækis auk upplýsing um eiganda og/eða umráðamanns.
Uppruni: Ökutækjaskrá, Vinnuvélaskrá  
Ábyrgðaraðili: Samgöngustofa, Vinnueftirlit ríkisins.
Nánar um ökutækja- og vinnuvélaskrá

Ökutækjaskrá - Eignaleit  
Lýsing: Upplýsingar um ökutækjaeign á valinn einstakling ásamt eignasögu.
Uppruni: Ökutækjaskrá  
Ábyrgðaraðili: Samgöngustofa.  

Vinnuvélaskrá - Eignaleit  
Lýsing: Upplýsingar um vinnuvélaeign á valinn einstakling  
Uppruni: Vinnuvélaskrá
Ábyrgðaraðili: Vinnueftirlit ríkisins

Greiðslumatskerfi
Lýsing: Kerfið er notað af lánveitendum til að meta svigrúm umsækjenda til lántöku.  
Uppruni: Þjóðskrá, fasteignaskrá, ökutækjaskrá, Creditinfo Lánstraust hf. og Skatturinn.
Ábyrgðaraðili: Bankar og lífeyrissjóðir (notendur)
Nánar um greiðslumat  

Skuldastaða
Lýsing: Staða lána og annarra fjárhagslegra skuldbindinga. Þegar fyrirspurn er gerð í kerfið eru sóttar upplýsingar um skuldbindingar til allra þátttakenda (banka og annarra lánveitenda) og niðurstöðurnar birtar á yfirliti.
Ábyrgðaraðili: Bankar og fjármálafyrirtæki (þátttakendur)
Nánar um skuldastöðukerfi  

Innheimtukerfi 
Lýsing: Kerfið heldur utan um kröfur í löginnheimtu. Kerfið býður upp á allar aðgerðir löginnheimtu og heldur utan um útreikninga krafna, s.s. höfuðstóla, kostnað, vexti, innborganir og skilagreinar.
Ábyrgðaraðili: Fjármálafyrirtæki og fyrirtæki í innheimtustarfsemi (notendur)  
Nánar um innheimtukerfi  

Tjónagrunnur 
Lýsing: Sameiginlegur skráningar- og uppflettigrunnur tryggingafélaga. Í grunninn eru skráð þau tjón sem tilkynnt eru til tryggingafélaganna að undanskildum tjónum sem falla undir líf- og sjúkdómatryggingar.
Ábyrgðaraðili: Tryggingafélög (þátttakendur)
Nánar um tjónagrunn

Áreiðanleikamat (KYC)
Lýsing:
Tilkynningaskyldum aðilum er veittur aðgangur að  því helsta sem þeim ber að kanna við mat á áreiðanleika viðskiptamanna sinna skv. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna.
Uppruni: Fyrirtækja- og félagaskrá, þjóðskrá, dómstólar, fjölmiðlar, Creditinfo Lánstraust hf. og alþjóðlegir þvingunarlistar.
Ábyrgðaraðili: Tilkynningaskyldir aðilar (notendur)
Nánar um áreiðanleikamat

Stjórnmálaleg tengsl
Lýsing: Listi yfir einstaklinga sem teljast hafa stjórnmálaleg tengsl samkvæmt skilgreiningu laga  um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Skráðir eru þeir einstaklingar sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu ásamt nánustu fjölskyldu þeirra og nánum samstarfsmönnum.
Uppruni: Þjóðskrá, Fyrirtækja- og félagaskrá, opinberar vefsíður, fjölmiðlar  
Sameiginlegir ábyrgðaraðilar: Creditinfo Lánstraust hf. og tilkynningaskyldir aðilar (notendur)
Nánar um stjórnmálaleg tengsl

Mitt Creditinfo
Lýsing: Aðgangsstýrður þjónustu- og upplýsingavefur fyrir einstaklinga og forsvarsmenn fyrirtækja  
Uppruni: Þjóðskrá Íslands, notendur  
Ábyrgðaraðili: Creditinfo Lánstraust hf.
Nánar um Mitt Creditinfo

Þjónustunotendur, tengiliðir viðskiptavina og þjónustuveitenda
Lýsing: Skráning og varðveisla upplýsinga um og þjónustunotendur tengiliði viðskiptavina og þjónustuveitenda í þeim tilgangi að tryggja rekjanleika og örugg samskipti.  
Ábyrgðaraðili: Creditinfo Lánstraust hf.  

Varðveisla og eyðing persónuupplýsinga

Persónuupplýsingar eru að hámarki varðveittar í þann tíma sem þess er þörf miðað við tilgang vinnslunnar og þeim eytt  þegar varðveisla þeirra samræmist ekki lengur upprunalegum tilgreindum tilgangi og að þeim tíma liðnum sem reglur eða samningar kveða á um. Persónuupplýsingar eru eftir atvikum afhentar eða þeim eytt, þ.m.t. hugsanlegum afritum þeirra, þegar skrifleg fyrirmæli þar að lútandi berast frá ábyrgðaraðila eða við samningslok,  þegar samþykki fyrir vinnslu upplýsinganna er afturkallað og þegar fimm ár eru liðin frá afskráningu upplýsinga um vanskil einstaklinga. Mynd- og símtalsupptökur eru varðveittar í þrjá mánuði og eytt að þeim tíma liðnum.

Réttindi einstaklinga og lögaðila

Einstaklingar og lögaðilar njóta margvíslegra réttinda samkvæmt persónuverndarlögum. Þar á meðal eru réttur til aðgangs að eigin upplýsingum, leiðréttingar rangra eða ófullnægjandi upplýsinga, andmæla við tiltekinni vinnslu, takmörkunar á vinnslu, eyðingar upplýsinga þegar skilyrði eru uppfyllt og, eftir atvikum, flutnings upplýsinga. Jafnframt eiga einstaklingar og lögaðilar rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd, telji þeir að vinnsla ábyrgðaraðila fari gegn lögum.

Beiðnum, athugasemdum og andmælum er komið á framfæri til Creditinfo á þjónustuvef Mitt Creditinfo (mittcreditinfo.is), í tölvupósti á netfangið creditinfo@creditinfo.is eða í síma. Creditinfo leitast við að svara og afgreiða öll erindi innan 14 daga frá móttöku. Reynist ekki unnt að afgreiða erindi innan 14 daga verður viðkomandi upplýstur um ástæður tafarinnar og hvenær sé áætlað að ljúka afgreiðslu.    

Þegar Creditinfo vinnur og/eða miðlar persónuupplýsingum sem vinnsluaðili, samkvæmt samningi, er ábyrgðaraðila veitt aðstoð við að sinna þeirri skyldu sinni að bregðast við erindum skráðra einstaklinga og lögaðila, svo sem vegna aðgangsréttar, réttar til leiðréttingar, eyðingar og flutnings upplýsinga, til að andmæla vinnslu eða takmarka hana.  

Aðgangur að upplýsingum  

Einstaklingar og lögaðilar eiga rétt á að fá staðfestingu á því frá Creditinfo hvort og hvaða upplýsingar félagið vinnur um þá sem ábyrgðaraðiili og rétt til aðgangs að þeim upplýsingum. Afrit upplýsinga er afhent í formi skýrslu sem ýmist er afhent á pósthúsi gegn framvísun persónuskilríkja, í hefðbundnum bréfpósti á skráð lögheimili samkvæmt þjóðskrá, í tölvupósti á skráð netfang tengt aðgangi að Mitt Creditinfo eða afhent á skrifstofu Creditinfo gegn framvísun persónuskilríkja.  

Creditinfo innheimtir alla jafna ekki gjald fyrir afrit upplýsinga. Réttur til aðgangs að upplýsingum getur verið háður takmörkunum, s.s. þeim sem lúta að líkanagerð. Þá áskilur Creditinfo sér rétt til að neita að verða við beiðni sem er augljóslega tilefnislaus, óhófleg eða ef beiðni fellur ekki að gildandi lögum og reglum.

Andmæli

Einstaklingar eiga rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga sem Creditinfo vinnur sem ábyrgðaraðili á grundvelli lögmætra hagsmuna. Andmælum vegna skráninga vanskila er einnig hægt að koma á framfæri til kröfuhafa eða umboðsmanns hans.  Ef andmæli eru einungs borin upp við Creditinfo og andmæli lúta að lögmæti kröfu eða að skuld hafi verið greidd eru þau borin undir viðkomandi kröfuhafa/umboðsmann kröfuhafa.  

Ef skráning vanskila reynist óáreiðanleg, ófullkomin eða óréttmæt er skráning þegar í stað leiðrétt og eftir atvikum felld úr birtingu á skránni.  Þetta á þó ekki við ef krafan hefur verið staðfest með opinberri réttargjörð, þ.e. aðfararhæfum dómi eða aðfararhæfri ákvörðun sýslumanns,  þá er vinnslan réttmæt þrátt fyrir andmæli og skráningin ekki afmáð fyrr en samningar nást við kröfuhafa, krafan er greidd eða niðurstöðu réttargjörðarinnar breytt.

Leiðrétting, eyðing og takmörkun og flutningur eigin upplýsinga

Einstaklingar og lögaðilar eiga rétt á að fá upplýsingar sem Creditinfo vinnur sem ábyrgðaraðili tafarlaust leiðréttar, s.s. ef, upplýsingar reynast rangar eða villandi, þeim eytt, s.s. ef  upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þeim tilgangi sem lá að baki söfnun þeirra eða vinnsla upplýsinganna byggir á samþykki einstaklings sem hann dregur til baka, og ekki er annar lagagrundvöllur fyrir vinnslunni og vinnslu takmarkaða, s.s. ef einstaklingur eða lögaðili véfengir að upplýsingar séu réttar, þangað til ábyrgðaraðilinn hefur fengið tækifæri til að staðfesta að þær séu réttar. Þá eiga einstaklingar og lögaðilar rétt á að fá afhentar upplýsingar sem Creditinfo hefur aflað á grundvelli samþykkis eða látið Creditinfo í té með öðrum hætti og eftir atvikum rétt á að Creditinfo flytji slíkar upplýsingar til annars ábyrgðaraðila.

Leiðrétting, eyðing og takmörkun og flutningur eigin upplýsinga

Persónuverndarfulltrúi Creditinfo er Páll Arnar Guðmundsson. Persónuverndarfulltrúi hefur það hlutverk að greina og fylgjast með reglufylgni í starfseminni, safna upplýsingum til að greina vinnslustarfsemi, meta áhrif á persónuvernd auk þess að fræða, upplýsa, ráðleggja og koma á framfæri tillögum til ábyrgðaraðila, vinnsluaðila og starfsmanna. Persónuverndarfulltrúi er tengiliður Creditinfo við Persónuvernd. Fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum sem varða persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga hjá Creditinfo er komið á framfæri til persónuverndarfulltrúa með því að senda tölvupóst á netfangið. personuverndarfulltrui@creditinfo.is eða með því að senda bréfapóst til: Creditinfo Lánstraust hf., Borgartúni 25, 105 Reykjavík, Ísland

Vinnsla persónuupplýsinga á grundvelli samþykkis

Einstaklingar sem hafa veitt samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga eiga rétt á að afturkalla samþykki sitt hvenær sem er, með jafn auðveldum hætti og það var veitt. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem byggðist á samþykkinu áður en það var afturkallað. Þau samþykki sem liggja til grundvallar vinnslu persónuupplýsinga sem Creditinfo vinnur sem ábyrgðaraðili eru bæði veitt og afturkölluð á vef Mitt Creditinfo (mittcreditinfo.is) auk þess sem afrit samþykkja og afturkallana eru aðgengileg á sama vef.

Sjálfvirk vinnsla persónuupplýsinga og gerð persónusniðs

Creditinfo vinnur lánshæfismat sem byggir á gerð persónusniðs og sjálfvirkri vinnslu persónuupplýsinga í þeim tilgangi að meta og spá fyrir um fjárhagsstöðu einstaklinga og líkur á greiðslufalli. Þegar slík vinnsla fer fram eiga einstaklingar rétt á að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar eru notaðar við útreikning á lánshæfismati viðkomandi og hvernig þær eru fengnar, vægi einstakra breytna við útreikning matsins,  þau rök sem liggja þar að baki og rétt á leiðréttingu ef upplýsingar til grundvallar matinu reynast óáreiðanlegar, ófullkomnar eða ef notkun þeirra reynist óréttmæt. Vinnsla lánshæfismats að hálfu Creditinfo felur ekki í sér sjálfvirka ákvarðanatöku heldur er niðurstaða þess afhent lánveitendum sem taka sjálfstæðar ákvarðanir á grundvelli hennar og annarra upplýsinga eftir því sem við á.

Fræðsla og tilkynningar um vinnslu

Áður en upplýsingum um vanskil einstaklings eða lögaðila er miðlað á skrá vanskila og opinberra gjörða  sendir Creditinfo viðkomandi tilkynningu um fyrirhugaða skráningu auk þess að tilkynna  einstaklingum eða lögaðilum þegar upplýsingum um vanskil þeirra eða lánshæfismat er miðlað til notanda þjónustu Creditinfo. Tilgangur þessara tilkynninga er að tryggja gagnsæi við vinnslu persónu- og fjárhagsupplýsinga, veita einstaklingum og lögaðilum upplýsingar um fyrirhugaða vinnslu eða framkvæmdar miðlanir og gera þeim kleift að gæta réttinda og hagsmuna sinna.

Réttur til að leggja fram kvörtun til eftirlitsstjórnvalda

Persónuvernd er eftirlitsstjórnvald sem m.a. annast eftirlit með framkvæmd persónuverndarlaga, sérákvæða laga um vinnslu persónuupplýsinga og annarra reglna sem settar eru á grundvelli laganna, móttekur kvartanir  og kveður upp úrskurði í málum þegar ástæða er til að ætla að brotið hafi verið gegn fyrrnefndum lögum eða reglum.
Kvörtun er komið á framfæri til Persónuverndar með því að senda tölvupóst á netfangið: postur@personuvernd.is eða með því að senda bréfapóst til: Persónuvernd, Laugavegi 166, 105 Reykjavík.  Einnig er að finna eyðublað fyrir kvörtun á vef Persónuverndar.

Mitt Creditinfo

Creditinfo rekur þjónustuvefinn Mitt Creditinfo (mittcreditinfo.is) í þeim tilgangi að veita einstaklingum aðgang að upplýsingum um eigin stöðu og stöðu tengdra fyrirtækja.  
Á þjónustuvefnum geta notendur nálgast yfirlit yfir þær upplýsingar sem Creditinfo vinnur um þá, auk þess að fylgjast með breytingum, tilkynningum og miðlun upplýsinga eftir því sem við á. Þjónustuvefurinn er jafnframt örugg samskiptaleið milli notenda og Creditinfo. Þar geta einstaklingar komið á framfæri athugasemdum, fyrirspurnum og beiðnum sem varða vinnslu upplýsinga þeirra eða tengdra fyrirtækja.  
Markmið Mitt Creditinfo er að stuðla að gagnsæi, auðvelda einstaklingum að gæta réttinda sinna og tryggja örugg og skilvirk samskipti við Creditinfo.  

Notendur Mitt Creditinfo þurfa að gefa upp kennitölu, netfang og/eða símanúmer. Kennitölur eru notaðar til að tryggja örugga og rétta auðkenningu notenda og  til að framsenda athugasemdir frá notendum til kröfueigenda, innheimtufyrirtækis eða þess fyrirtækis sem gerði fyrirspurn í kerfi Creditinfo. Í þeim tilvikum fylgja kennitölur notenda, enda telst það nauðsynlegt til að kanna rétta miðlun upplýsinga um notanda eða réttmæti athugunar á stöðu notanda. Netföng og/eða símanúmer eru notuð til að eiga örugg samskipti við notendur, s.s.  til að móttaka og svara fyrirspurnum og athugasemdum sem berast Creditinfo frá notendum og til að gera notendum viðvart ef ný tilkynning frá Creditinfo hefur verið aðgengileg á þjónustuvefnum.  

Auk upplýsinga sem nauðsynlegar eru til auðkenningar notanda og samskipta vistar Creditinfo tilkynningar til notanda og gögn sem notandi kaupir á vef Mitt Creditinfo í þeim tilgangi að gera aðgengilegar notanda. Dagsetningar og tími innskráninga notenda eru varðveittar í þeim tilgangi að tryggja rekjanleika, öryggi og vernd persónuupplýsinga.

Samskipti við notendur í gegnum vefinn og netfangið mittcreditinfo@creditinfo.is eru geymd í tvö ár. Hvorki netföngum né símanúmerum er miðlað til þriðja aðila.

Notendur hafa val um að netföng séu notuð í þeim tilgangi að fá sendar greiðslukvittanir vegna kaupa á vörum á vefnum auk tilkynninga um nýja eða breytta þjónustu Creditinfo. Notendur geta hvenær sem óskað eftir að netföng þeirra séu ekki notuð í þessum tilgangi.  

Við kaup á vörum á vefnum þurfa notendur að gefa upp greiðslukortaupplýsingar. Í greiðslukortaviðskiptum vistar Creditinfo síðustu fjóra tölustafina í greiðslukortanúmerinu og upplýsingar um gildistíma korts. Einnig er sýndarnúmer korts vistað, en það er öryggisráðstöfun til að minnka hættu á misnotkun kortaupplýsinga. Aðrar upplýsingar tengdar greiðslukorti eru eingöngu vistaðar ef notandi hefur valið þann möguleika og með sama hætt valið að þær verði fjarlægðar og vistun þeirra hætt.
 

Vefkökur

Creditinfo notar vefkökur (e. cookies) sem vistast í tölvu notandans í þeim tilgangi að greina heimsóknir á vefsíður og hjálpa til við að bæta virkni þeirra. Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefs, s.s. hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft. Þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar. Creditinfo notar einnig Google Analytics sem safnar upplýsingum nafnlaust og gefur skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Á þjónustuvef Mitt Creditinfo geta notendur valið og stillt hvaða vefkökur eru notaðar. Einnig er hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig er hægt að eyða kökum með einföldum hætti. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum flestra vafra. Slíkar breytingar kunna að takmarka aðgengi að tilteknum vefsíðum eða vefsvæðinu í heild sinni.

Persónuverndarfulltrúi Creditinfo

Persónuverndarfulltrúi Creditinfo er Páll Arnar Guðmundsson. Persónuverndarfulltrúi hefur það hlutverk að greina og fylgjast með reglufylgni í starfseminni, safna upplýsingum til að greina vinnslustarfsemi, meta áhrif á persónuvernd auk þess að fræða, upplýsa, ráðleggja og koma á framfæri tillögum til ábyrgðaraðila, vinnsluaðila og starfsmanna. Persónuverndarfulltrúi er tengiliður Creditinfo við Persónuvernd. Fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum sem varða persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga hjá Creditinfo er komið á framfæri til persónuverndarfulltrúa með því að senda tölvupóst á netfangið personuverndarfulltrui@creditinfo.is eða með því að senda bréfapóst til Creditinfo Lánstraust hf., Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Reykjavík, 12. júní 2026

Creditinfo endurskoðar og uppfærir þessa lýsingu á meðferð og vinnslu upplýsinga eins og tilefni er til en að lágmarki á tveggja ára fresti.

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.