Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Við veitum sérhæfða ráðgjöf á sviði áhættustýringar, greiningar og sjálfbærni og styðjum þannig fyrirtæki í að taka upplýstar ákvarðanir sem skapa aukið virði.

Helstu ráðgjafaverkefni fyrir viðskiptavini:

Dr. Gunnar Gunnarsson,
Forstöðumaður, Greining og ráðgjöf
Gunnar er með doktorspróf í stærðfræði frá Kaliforníuháskóla í Santa Barbara (UCSB), M.A. gráðu í stærðfræði frá sama skóla og B.Sc. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Gunnar hefur starfað um árabil á sviði áhættustýringar, m.a. innan Íslandsbanka í rúm 6 ár og sem meðlimur í áhættunefnd stjórnar Íbúðalánasjóðs og Teya. Á árunum 2012 - 2014 var hann deildarstjóri innan áhættustýringar hjá Íslandsbanka, vann svo sjálfstætt sem ráðgjafi í áhættustýringu til 2016 en hefur síðan stýrt Greiningu og ráðgjöf hjá Creditinfo og ber þar m.a. ábyrgð á lánshæfismati einstaklinga og fyrirtækja sem og öðrum greiningum félagsins.


”Creditinfo veitti okkur metnaðarfulla og vandvirka ráðgjöf sem skilaði raunverulegu virði fyrir fyrirtækið. Framúrskarandi þjónusta og skýr samskipti einkenndu ferlið frá upphafi til enda.”
