Í sjö ár hefur Creditinfo veitt sérstök hvatningarverðlaun fyrir sjálfbærni þeim fyrirtækjum sem þykja skara fram úr á því sviði í hópi Framúrskarandi fyrirtækja.
Sjálfbærni skiptir okkur miklu máli og við trúum því að öll Framúrskarandi fyrirtæki þurfi að huga að sjálfbærni með markvissum hætti. Hvatningarverðlaununum er því ætlað að draga fram fyrirmyndirnar sem geta verið öðrum hvatning á þessu sviði.
Verðlaunin eru veitt á sama tíma og listinn er gerður opinber ár hvert.
Árið 2024 hlaut Steypustöðin hvatningarverðlaun um framúrskarandi framtak á sviði umhverfismála 2024
Í umsögn dómnefndar kemur fram að Steypustöðin hafi lagt mikla vinnu í að efla sjálfbærnivegferð sína og að fjárfesta í umhverfisvænni lausnum, rafvæðingu og nýjum aðgerðum til þess að draga úr kolefnislosun.
Verðlaunin hlýtur fyrirtækið fyrir sérstakt framtak sitt við rafvæðingu bílaflota síns. Nú samanstendur rafmagnsfloti fyrirtækisins af 6 rafmagns steypubílum, 1 rafmagns dráttarbíl og 2 hybrid steypudælum, eða 9 tækjum í heildina og stefnan er sett á að 70% flotans verði knúinn á endurnýjanlegum orkugjöfum árið 2032. Fyrirtækið hefur haldið utan um sparnað í CO2 sem og sparnað í dísilolíu frá tilkomu fyrstu rafmagnssteypubílana Árið 2023 sparaði Steypustöðin um 100,000 kg CO2 frá 3 maí 2023 þegar fyrsti rafmagns steypubíllinn var tekinn í notkun en það samsvarar um 32,000 lítrum í dísilsparnaði. Dísilsparnaður ársins 2024 er nú orðinn rúmir 56,000 lítrar.
Hvatningarverðlaunin eru veitt samhliða birtingu lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2024. Dómnefnd vann úr lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem sýndu fram á skýra stefnu um samfélagsábyrgð, sjálfbærni, kynjajafnrétti og réttindi starfsfólks. Verðlaunin eru unnin í samstarfi við Festu – miðstöð um sjálfbærni. Í dómnefnd sátu Þórólfur Nielsen, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Landsvirkjun, Elín Jónsdóttir, deildarstjóri lagadeildar Háskólans á Bifröst, Stefán Kári Sveinbjörnsson sjálfbærnistjóri Festi og Arent Orri Jónsson Claessen forseti stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Árið 2024 hlaut Krónan verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sviði sjálfbærni.
Í dómefnd sátu Þórólfur Nielsen, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Landsvirkjun, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir forseti samfélagssviðs hjá Háskólanum í Reykjavík, Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS og Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og forseti UU.
Verðlaunin hlaut fyrirtækið fyrir Heillakörfuna, sérstaka lausn í Krónuappinu sem veitir notendum tækifæri til að safna stigum fyrir vörur sem eru bæði þeim sjálfum og umhverfinu til heilla. Markmið Heillakörfunnar er að stuðla að jákvæðum venjum í daglegum innkaupum og hjálpa notendum að taka meðvitaðri ákvarðanir. Stig eru veitt fyrir vörur í tíu vöruflokkum, sem eru valdir út frá heildrænni nálgun á umhverfisvernd, lýðheilsu, endurnýtingu, umbúðum og vottunum. Notendur geta sett sér mánaðarleg markmið, fylgst með árangri sínum og borið saman innkaup síðustu mánaða. Lausnin veitir yfirsýn yfir vörur sem stuðla að betri heilsu og sjálfbærari framtíð.
Hvatningarverðlaunin eru veitt samhliða birtingu lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2024. Dómnefnd vann úr lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem sýndu fram á skýra stefnu um samfélagsábyrgð, sjálfbærni, kynjajafnrétti og réttindi starfsfólks. Verðlaunin eru unnin í samstarfi við Festu – miðstöð um sjálfbærni. Í dómnefnd sátu Þórólfur Nielsen, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Landsvirkjun, Elín Jónsdóttir, deildarstjóri lagadeildar Háskólans á Bifröst, Stefán Kári Sveinbjörnsson sjálfbærnistjóri Festi og Arent Orri Jónsson Claessen forseti stúdentaráðs Háskóla Íslands. Vert er að taka fram að Stefán Kári sat hjá við ákvarðanatöku um veitingu verðlauna til Krónunnar þar sem hann starfar fyrir móðurfélag fyrirtækisins.
„Ég er mjög ánægður með þessa vottun og þá möguleika sem hún gefur. Ég hef aldrei auglýst mitt fyrirtæki og hef engan áhuga á að vera áberandi, en það sem þetta hefur gefið mér er að fyrirtækið hefur notið talsvert meiri trúverðugleika í samskiptum við nýja viðskiptamenn og sérstaklega samningum við nýja birgja.Traust hvað varðar greiðslukjör hefur snarstyrkst við þessa viðurkenningu.Takk fyrir mig.“