Fréttir af Creditinfo
Viðskiptamannavaktin
Betri ákvarðanir

Nýtt Creditinfo app fyrir Business Central

17.9.2026

Creditinfo hefur nú gefið út app í Business Central (BC) sem tengir viðskiptamannavakt Creditinfo beint við bókhaldskerfið og færir þannig mikilvægar upplýsingar um viðskiptamenn inn í kerfið þar sem vinnan fer fram.

Með tengingunni geta notendur nálgast mikilvægar upplýsingar um viðskiptavini beint í Business Central, meðal annars lánshæfismat, vanskilastöðu og upplýsingar um vöktun. Einnig er hægt að sýsla með vaktina, sækja stakar uppflettingar og vinna með vaktargögn án þess að fara á milli kerfa.  

Markmiðið er að færa upplýsingarnar nær daglegu vinnuumhverfi notenda. Appið er aðgengilegt án endurgjalds í Microsoft AppSource og fyrir viðskiptavini sem þegar eru með viðskiptamannavakt bætist enginn nýr kostnaður við vegna tengingarinnar.  

‍
Hér er upptaka af fræðslufundi Creditinfo þar sem farið var yfir virkni og helstu möguleika appsins.  

Deila efni:

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.